miðvikudagur 08.september 2010
Flýtilyklar
Vefverslun
ATH ! Vegna óstöðugs gengis er ómögulegt að hafa öll verð rétt í krónum. Því er nauðsynlegt að hafa samband við okkur til að fá rétt verð á hljóðfærunum.
Steinway & Sons
Einfaldlega bestu hljóðfæri í heimi.Einstakur tónn og ásláttur sem allir bestu píanóleikarar heimsins þekkja og leika á í yfir 95% þekktustu tónleikasala heimsins.
Frá Steinway koma einnig Boston og Essex hljóðfærin. Hönnuð af Steinway og þú nýtur allra kosta þess að vera kominn í Steinway fjölskylduna.Þessum hljóðfærum má síðan skipta upp í Steinway innan 5 ára fyrir það verð sem greitt var í upphafi.
Hljóðfærahúsið er umboðsaðili fyrir Yamaha hljóðfæri.
Yamaha er fyrir löngu orðið eitt virtasta merki heims
í píanóum og flyglum enda hljóðfærin afbragðsgóð og
hafa reynst sérlega vel.
Þetta vita þeir fjölmörgu tónlistarkennarar sem mæla með þeim fyrir nemendur sína og skóla.
Yamaha hefur öðlast slíka viðurkenningu með stöðugum framförum og gæðakröfum sem setja viðmið fyrir aðra.
______________________________________________
Wendl & Lung hljóðfærin eru að okkar mati einhver allra bestu kaupin í ódýrum píanóum í dag. Hljóðfærin eru sérstaklega vel hönnuð og smíðuð. Tónninn er mikill en þó mjúkur og fallegur. Áslátturinn er að okkar mati framúrskarandi. Í 122 cm. píanóinu er álrammi undir nótnaborðinu sem kemur í veg fyrir að stillingar í nótnaborði og hamraverki fari úr skorðum vegna hita og rakabreytinga. Nóturnar sjálfar eru úr 17 lögum af timbri með harðviðarinnleggi til að koma í veg fyrir að nótur verpist eða breyti lögun við raka og hitasveiflur.
Hamrar og annað efni er í gæðaflokki sem ekki hefur sést í þessum verðflokki áður og útkoman í heild er fallegt og gott hljóðfæri sem hefur fengið verðlaun í Evrópu fyrir hönnun og gæði.
Skoða Heimasíðu Wendl & Lung
________________________________________________
Öll þjónusta varðandi píanó og flygla og mikið úrval aukahluta.
- Steinway Concert Grands to be Played at 32nd Annual Kennedy Center Honors - Dec. 29, 9PM (ET/PT) on CBS
- University of Florida Enters New Decade as an All-Steinway School
- Steinway Artist Lang Lang Plays at the Nobel Peace Prize Award Ceremony
- Wednesday on the NewsHour: Pianist Richard Glazier Is 'Crazy for' Gershwin
- Financial Commitment from Saraceni Family Enables Seton Hill University to Announce Intent to Become All-Steinway School
Leita
Flokkur
Karfa
Fréttir
fimmtudagur 26.ágúst 2010
fimmtudagur 19.ágúst 2010
föstudagur 16.júlí 2010
þriðjudagur 01.júní 2010
Opnunartími og Vefverslun
Venjulega er verslunin er opin alla virka daga frá kl.10 til 18.
Á laugardögum frá kl.12 til 15
ATH! Verð á vef okkar er birt með fyrirvara um innsláttarvillur, gengis- og verðbreytingar.
Á laugardögum frá kl.12 til 15
ATH! Verð á vef okkar er birt með fyrirvara um innsláttarvillur, gengis- og verðbreytingar.
Teljari
Í dag: 173
Samtals: 167049
Samtals: 167049







