Nýjungar frá Propellerhead
Hugbúnaður - miðvikudagur 28.september 2011

Nýjasta afurð Propellerhead manna, Reason 6
kemur á markað 30.september og mun innihalda
haug af nýjungum. Í þessari nýju útgáfu er búið að
sameina Reason og Record, þannig að útkoman er geysiöflugt
upptökuforrit við allra hæfi.
Fyrir þá sem vilja einfaldara og minna
forrit með mörgum af eiginleikum Reason 6 þá
er Reason Essentials málið.
Oooog ekki aldeilis nóg með það því frá
30. september til 31. október stendur þeim
sem eiga Record Reason Duo til boða að
ná í uppfærslu í Reason 6 á vefsvæði Propellerhead.
Verðið á þeirri uppfærslu er
algjörlega í þínum höndum...
Eða eins og þeir orða þetta:
Get what you need.
Pay what you want.















