Fara í efni

Karfan þín

Karfan er tóm.

Skilmálar

Skilmálar Hljóðfærahússins

1. Almenn ákvæði

Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru á vefnum www.hljodfaerahusid.is,í eigu  Hljóðfærahússins ehf. 690506-1570 Síðumúla 20 108 Reykjavík, – í skilmálum þessum nefnt Hljóðfærahúsið. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur Hljóðfærahússins annars vegar og kaupanda vöru hins vegar.

„Söluaðili“ er fyrirtæki sem býður vöru eða þjónustu til sölu á hljodfaerahusid.is

„Kaupandi“ er einstaklingur sem er aðili samnings en stundar ekki viðskipti eða aðra athafnastarfsemi, þ.e. einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu í skilningi laga um neytendakaup.

Verð á vefsíðunni eru með virðisaukaskatti samkvæmt fyrirliggjandi gögnum og upplýsingum frá söluaðila og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur. Sendingarkostnaður er almennt innifalinn á viðskiptum yfir 12.000 kr. Þetta á þó ekki við á píanóum og flyglum eða öðrum vörum sem eru meira en 20 kg. eða 1 rúmmeter, né heldur um sendingar til útlanda. Ef verslað er fyrir minna en 12.000 kr. er sendingarkostnaður kr. 1.400. Einnig bjóðum við upp á heimsendingu á höfuðborgarsvæði fyrir 5.000 kr

Útsölu/tilboðsvörum fæst ekki skilað eða skipt 

2. Persónuupplý­singar

Hljóðfærahúsið meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Persónuupplýsingar sem berast Hljóðfærahúsinu eru skráðar rafrænt í gagnagrunn Hljóðfærahússins og aðeins umsjónaraðili kerfisins hefur aðgang að þeim. Persónuupplýsingar eru ekki veittar þriðja aðila.

Við kaup á vöru eða þjónustu veitir kaupandi Hljóðfærahúsinu samþykki sitt til að safna og vinna úr persónuupplýsingum úr gagnagrunni fyrirtækisins. Úrvinnsla gagna fer fram svo lengi sem kaupandi lýsir ekki andstöðu sinni við meðferð upplýsinganna. Ef kaupandi óskar eftir að koma athugasemdum um meðhöndlun persónuupplýsinga á framfæri eða óskar eftir að persónuupplýsingum sínum verði eytt úr grunninum, skal athugasemdum komið til Hljóðfærahússins í tölvupósti á info@hljodfaerahusid.is eða bréflega á heimilisfang Hljóðfærahússins, Síðumúla 20, 108 Reykjavík. Upplýsingum um kaupanda verður þá eytt úr gagnagrunninum og kaupandi upplýstur um það sérstaklega.

Hljóðfærahúsið áskilur sér rétt til að nota persónuupplýsingar til að senda viðskiptavinum markpósta með tölvupósti og/eða sms-skeytum, er það gert í þeim tilgangi að veita viðskiptavinum sem besta þjónustu.

3. Frágangur viðskipta

Með greiðslu staðfestir kaupandi að hann þekki gildandi skilmála Hljóðfærahússins.

Hver kaup eru bindandi fyrir kaupendur samkvæmt skilmálum og skilyrðum Hljóðfærahússins.