Fara í efni

Karfan þín

Karfan er tóm.

Rafmagnspíanó

Hér eru upplýsingar um rafmagnspíanóin okkar, hvað hentar hverjum ofl.

YAMAHA P125

Þetta er langvinsælasta rafmagnspíanóið okkar. Ástæðan er einföld, mikil  gæði fyrir lágt verð. Þetta hentar mjög vel fyrir byrjendur sem og þá sem þurfa að geta tekið píanóið með sér, því það er létt og meðfærilegt. Hægt er að hafa það á lausum standi eða fá undir það fastan stand frá YAMAHA. Það fylgir laus pedali en líka er hægt að kaupa með fasta standinum þriggja pedala viðbót sem festist við standinn. 

 

Yamaha p115

YAMAHA YDP144

Nýtt módel sem kemur í stað YDP -143. Vinsælt rafmagnspíanó sem er ætlað byrjendum sem vilja fá allt í einum pakka og ekki vera með píanóið á lausum standi. Hér má loka hljóðfærinu og áfastur nótnastandur gerir þetta að sérlega  hentugu æfingahljóðfæri. Tengi fyrir tölvu og 2 heyrnartól.

 YDP 143

YAMAHA YDP164

 

Nýtt módel sem kemur í stað YDP -163. Vinsælt rafmagnspíanó sem er ætlað byrjendum sem og lengra komnum.Hefur öflugra hljóðkerfi en
YDP-144 og betra nótnaborð. Tengi fyrir tölvu og 2 heyrnartól.

 YDP163

YAMAHA CLP 735

 

Nýjasta útgáfan af hinu frábæru Clavinova rafmagnspíanóum frá Yamaha. Nýr hljóðgjafi með tónum frá Bösendorfer og Yamaha flyglum gera þetta að stórskemmtilegu hljóðfæri.USB hljóðupptaka möguleg og fjöldi hljóðfæra. Tengi fyrir tölvu og 2 heyrnartól.

 CLP535

YAMAHA CLP 745

 

Nýjasta útgáfan af hinu frábæru Clavinova rafmagnspíanóum frá Yamaha. Öflugra hljóðkerfi og viðarnótnaborð er það sem þetta hefur fram yfir CLP -735. Nýr hljóðgjafi með tónum frá Bösendorfer og Yamaha flyglum gera þetta að stórskemmtilegu hljóðfæri.USB hljóðupptaka möguleg og fjöldi hljóðfæra. Tengi fyrir tölvu og 2 heyrnartól.

 CLP545

YAMAHA DGX670

Þetta er ný útgáfa af vinsælu píanói sem er í raun blanda af hljómborði með skemmtara og rafmagnspíanói. Fullt 88 nótna píanóborð með þyngdum nótum og fullt af skemmtilegum möguleikum. Hentar byrjendum og þeim sem vilja spila með undirleik.

Yamaha DGX670

YAMAHA P515

 

Fyrir þá sem spila víða ! Þetta er mjög hentugt bæði í heimahús og á svið. Innbyggðir hátalarar auka notagildið, USB upptaka og Bluetooth tenging er ótvíræður kostur.  Yamaha P515 er með frábærum Yamaha CFX og Bösendorfer pianó "sömplum" og viðarlyklaborð.