Karfan er tóm.
Nánari lýsing
Efnið byggir upp traustan grunn í áslætti og undirleik. Það skiptist í tvö hefti sem styðja hvort annað:
- Vinnuhefti: Skýrar myndir og hnitmiðaðar æfingar fyrir kennslu og heimanám.
- Lagahefti: Kunnugleg og skemmtileg lög sem nemandinn lærir fljótt að spila.
Lögin eru sérstaklega útsett með tilliti til raddsviðs barna, en auðvelt er að færa tónhæðina til með gítarklemmu svo hún passi rödd hvers nemanda. Efnið hentar jafnt í einkatíma sem hópkennslu og veitir nemandanum strax þá dýrmætu upplifun að spila og syngja heil lög.
Kennsluleiðbeiningar og ítarefni má finna á www.gitargaldur.is.
Hér er hægt að glugga í vinnuheftið: Vinnuhefti
Höfundur: Ólafur Torfason