Í bókinni eru íslensk og erlend dægurlög í einföldum útsetningum fyrir píanó. Öll lögin eru útsett fyrir fjórar hendur (fjórhent) og útsetningarnar eru hugsaðar fyrir byrjendur.
Ný útgáfa! Fyrsta útgáfa bókanna Jólalög 1.- 2. og 3. hefti kom út árið 1995. Nú er ég búinn að endurskoða bækurnar og hafa þær tekið mjög miklum breytingum, sérstaklega 2. og 3. heftið. Ég hef fellt út eldri lög og sett önnur ný í staðinn. Einnig hef ég endurskoðað útsetningar eldri laga.
Meðal nýrra jólalaga í bókunum má nefna:
Dansaðu vindur, Snjókorn falla, Jólaklukkur kalla, Jólagleði, Jólahjól, Jólin eru að koma, Nei, nei, ekki um jólin, Eitt lítið jólalag, Hin fyrstu jól, Jólasnjór og Það snjóar. Einnig má geta þess að í 3. heftinu eru tvö hátíðarlög en það eru lögin Ave María eftir Sigvalda Kaldalóns og Vetrarsól eftir Gunnar Þórðarson.
Í gegnum tíðina hef ég verið að semja eitt og eitt lag fyrir nemendur mína og sum þeirra hafa ratað í kennslubækurnar mínar Píanó-leikur 1. – 2. og 3. hefti. Í þessari bók hef ég valið þau lög sem nemendum mínum hafa fundist hvað skemmtilegast að spila og einnig eru nýrri lög sem hafa ekki komið út áður. Lögunum er raðað þannig upp, að léttustu lögin eru fremst og síðan verða þau erfiðari þegar líður á bókina. Lögin eru samin í mismunandi stíl, þ.e.a.s. blús, ragtime, boogie, vals og einnig í klassíkum stíl og eru þar af leiðandi mjög ólík. Þess vegna heita bækurnar „Píanólög í öllum regnbogans litum I og II“.