Fara í efni

Karfan þín

Karfan er tóm.

VNR.: SNERILTROMMAN

Sneriltromman Jón Björgvinsson

Samtals m/vsk
5.490 kr.
Framleiðandi 0110622889
Samtals m/vsk
5.490 kr.

Nánari lýsing

Bókin er sniðin að íslensku námsskránni í slagverksleik, nánar tiltekið sneriltrommunni.

Í henni eru æfingar sem síðan nýtast við leik á flestöll önnur slagverkshljóðfæri.

Markmiðið er að til sé aðgengilegt efni í einni bók á íslensku um þetta viðfangsefni, en það hefur ekki verið til. Þar að auki eru skýringar miðaðar við það að ekki sé alltaf sérhæfður slagverkskennari við kennslu, sem oft er raunin í okkar fámenna samfélagi. Bók sem þessi gæti haft mikla þýðingu, bæði fyrir slagverks-nemendur og kennara í tónlistarskólum landsins, svo og tónmenntakennara í grunnskólum, þar sem skortur er á góðu efni á íslensku. Hér eru tekin saman þau atriði (grunnæfingar) sem skipta máli fyrir framþróun tæknilegrar getu í sneriltrommuleik. Um er að ræða efni til grunnprófs, en sambærilegt efni til mið- og framhaldsprófs er í bígerð.

Nýlega skoðað

Íslenskar Nótnabækur - Fleiri vörur

Nýtt

Píanólög í Öllum Regnbogans Litum 2

Í gegnum tíðina hef ég verið að semja eitt og eitt lag fyrir nemendur mína og sum þeirra hafa ratað í kennslubækurnar mínar Píanó-leikur 1. – 2. og 3. hefti. Í þessari bók hef ég valið þau lög sem nemendum mínum hafa fundist hvað skemmtilegast að spila og einnig eru nýrri lög sem hafa ekki komið út áður. Lögunum er raðað þannig upp, að léttustu lögin eru fremst og síðan verða þau erfiðari þegar líður á bókina. Lögin eru samin í mismunandi stíl, þ.e.a.s. blús, ragtime, boogie, vals og einnig í klassíkum stíl og eru þar af leiðandi mjög ólík. Þess vegna heita bækurnar „Píanólög í öllum regnbogans litum I og II“.
Samtals m/vsk
2.990 kr.
Á lager
Nýtt

Píanólög í Öllum Regnbogans Litum 1

Rafgítarbókin

Rafgítarbókin er ætluð fyrir byrjendur á öllum aldri! Hún hentar einnig vel fyrir nemendur sem eru að skipta úr klassísku námi yfir í ritmískt nám eða sjálflærðum sem þurfa að skerpa á undirstöðuatriðum. Bókin inniheldur 58 lög ásamt hljóðdæmum og undirspili sem er aðgengilegt öllum á streymisveitum. Kennt er að lesa bæði TAB og hefðbundar nótur en bókin leggur einnig grunn fyrir hljómalestur. Einnig inniheldur bókin alla tónstiga og hljóma sem ætlast er að nemendur kunni fyrir grunnstig í ritmísku gítarnámi. Höfundur: Kristinn Smári Kristinsson
Samtals m/vsk
4.290 kr.
Á lager